Hugann seiða svalli frá sundin, heiði og skörðin; vona-leið er valin þá vestur Breiðafjörðinn. Allt er borið burtu gróm bæði af Skor og fjöllum, því að vorið blóm við blóm breiddi í sporum öllum. Dægur-halli daggperlum dreifir vallargróðann; bjargastalla beltast um blessuð fjallamóðan. Þrjóti grið á þessum stað, þá er lið að skeiðum, því að hlið er opið að úthafsmiðum breiðum.